Nýverið voru fjórir starfsmenn Kletts heiðraðir í tilefni af tímamóta starfsafmælum sínum.
Scania var mest seldi vörubíllinn á Íslandi árið 2023, í flokki vörubíla 16 t. og stærri (vörubílar II) með 36% markaðshlutdeild eða 106 bíla. Volvo kemur þar á eftir með 31% eða 90 bíla, Benz með 17% eða 50 bíla og MAN með 12% eða 36 bíla. Síðastliðin 24 ár í röð hefur Scania verið markaðsleiðandi hér á landi og erum við afar stolt af þeim árangri.
MyScania var valið sem besta flotastjórnunarkerfið á German Telematics Award 2024. MyScania flotastjórnunarkerfið er frábær lausn fyrir bílstjóra og stjórnendur til að fylgjast með daglegum rekstri á bílaflotanum sínum. Verðlaunin undirstrika skuldbindingu Scania til stafrænnar nýsköpunar og sjálfbærni í samgöngumálum.
Scania hefur hlotið hin virtu verðlaun European Transport Award í flokknum „Rafknúnir vörubílar“ á grundvelli sjálfbærnisjónarmiða þeirra.
Skeljungur, dótturfélag Skeljar fjárfestingarfélags, gekk formlega frá kaupunum á Kletti – sölu og þjónustu ehf. í dag og tók Kristján Már Atlason við sem forstjóri félagsins. Samhliða tók Skel fjárfestingafélag yfir Klettagarða 8-10 ehf., félaginu sem á og rekur húsnæðið sem hýsir hluta af starfsemi Kletts.
Nú á dögunum kynnti Scania nýtt Scania Driver app sem gerir þér kleift að fjarstýra olíumiðstöðinni í stýrishúsinu þannig að hitastigið sé gott og þægilegt áður en þú ferð inn.
Árið 2022 hefur verið eitt besta ár Kletts frá upphafi. CAT og Scania eru markaðsleiðandi á sínum sviðum og hefur hjólbarðasalan aldrei verið meiri og hefur hún margfaldast á undanförnum árum.
Klettur býður viðskiptavinum sínum upp á fjarniðurhal af ökuritum og ökumannskortum. Í nútíma samfélagi er skilvirkasta leiðin til að meðhöndla ökuritagögn að gera ferlið eins sjálfvirkt og mögulegt er.
Velheppnaðri Bauma sýningu lauk í síðustu viku þar sem starfsmenn Kletts tóku á móti stórum hópi viðskiptavina. Bauma er ein stærsta vinnuvélasýning í heimi sem haldin er í Þýskalandi og fer fram þriðja hvert ár.
Klettur ásamt öðrum góðum aðilum tók þátt í verkefninu „Allir öruggir heim 2022“ þar sem 9.000 endurskinsvestum er dreift í alla leik- og grunnskóla á landinu til að nota í vettvangsferðum barna.