MAXAM - traustur kostur fyrir vinnuvélar og landbúnað

Rétt val á hjólbörðum getur skipt miklu máli fyrir afköst, endingu og rekstraröryggi vinnuvéla. Eggert Bjarki Eggertsson, starfsmaður hjá Kletti hjólbörðum, segir MAXAM-dekkin hafa reynst vel við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. Fyrirtækið hefur selt vinnuvéla- og landbúnaðardekk frá MAXAM um árabil og byggt upp góða reynslu af vörumerkinu.

MAXAM framleiðir dekk fyrir fjölbreyttar tegundir vinnuvéla, meðal annars veghefla, búkollur og hjólaskóflur. Dekkin eru fáanleg í mörgum styrkleikaflokkum, frá L2 upp í L5, auk þess sem hægt er að velja á milli ólíkra mynsturgerða eftir því við hvaða aðstæður vélin er notuð. Þannig er hægt að finna dekk sem henta hvort sem vélin er fyrst og fremst notuð á föstu undirlagi, í lausamöl, grjóti eða við önnur krefjandi verkefni.

„MAXAM er mjög góður kostur í vinnuvélageiranum. Úrvalið er fjölbreytt, bæði hvað varðar styrkleika og mynstur, og því er hægt að finna dekk sem henta ólíkum vélum og verkefnum,“ segir Eggert.

Að hans sögn skiptir miklu máli að velja hjólbarða með hliðsjón af notkun vélarinnar. Rétt mynstur og styrkleiki geta stuðlað að betra gripi, aukinni endingu og minni hættu á skemmdum. Um leið getur rétt dekkjaval haft jákvæð áhrif á rekstrarkostnað, enda eru hjólbarðar mikilvægur þáttur í daglegum rekstri þungra vinnuvéla.

‍

Rétt dekk fyrir hvert verkefni

Vöruúrval MAXAM nær einnig til dráttarvéladekkja og annarra hjólbarða fyrir landbúnaðartæki. Þar þurfa dekkin að takast á við ólíkt undirlag og mismunandi álag en jafnframt að veita gott grip og stöðugleika við vinnu.

Þá býður MAXAM upp á fjölbreytt úrval lyftaradekkja, bæði massífra og loftfylltra. Einnig fæst gott úrval dekkja fyrir skotbómulyftara, sem oft eru notaðir við erfiðar aðstæður þar sem reynir mikið á styrk og endingu hjólbarðanna.

Sterk staða MAXAM á alþjóðlegum markaði endurspeglast meðal annars í því að vörumerkið er orðið OE-framleiðandi fyrir CAT. Það þýðir að MAXAM-dekk eru notuð sem upprunalegur búnaður á tilteknum vélum frá framleiðandanum.

„Það eru gríðarleg meðmæli fyrir MAXAM að vörumerkið sé orðið OE-framleiðandi fyrir CAT. Slíkt samstarf gerir strangar kröfur um gæði, endingu og afköst,“ segir Eggert.

‍

Aðrar fréttir

Sjá meira