Kristján Már tekur við sem forstjóri Kletts

Skeljungur, dótturfélag Skeljar fjárfestingarfélags, gekk formlega frá kaupunum á Kletti – sölu og þjónustu ehf. í dag og tók Kristján Már Atlason við sem forstjóri félagsins. Samhliða tók Skel fjárfestingafélag yfir Klettagarða 8-10 ehf., félaginu sem á og rekur húsnæðið sem hýsir hluta af starfsemi Kletts.

Knútur Grétar Hauksson, núverandi forstjóri og stærsti eigandi Kletts, fer út úr eigendahópnum en verður stjórnarformaður félagsins. Bjarni Arnarsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, Sveinn Símonarson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs, og Kristján Már verða í nýjum hluthafahópi. Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, mun starfa áfram með nýjum eigendum.

Klettur er sölu- og þjónustufyrirtæki sem byggt er upp utan um alþjóðleg vörumerki á sviði vinnuvéla, vörubíla, hópbifreiða, tækja, skipavéla, varaaflsstöðva og hjólbarða. Klettur er umboðsaðili Scania, Caterpillar, Ingersoll Rand, Goodyear, Hankook og Nexen á Íslandi auk ýmissa annarra vörumerkja.

Klettur rekur þjónustuverkstæði í Reykjavík og á Akureyri. Þá er félagið einn stærsti söluaðili hjólbarða á Íslandi og starfrækir hjólbarðaverkstæði undir nafni Kletts ásamt því að eiga vörumerkið Sólningu en fjögur sjálfstæð verkstæði eru rekin undir nafni þess. Hjá félaginu starfa 115 manns.

„Árið 2022 var besta rekstrarár félagsins, bæði með tilliti til sölu og afkomu. Áætlanir gera ráð fyrir að árið 2023 verði enn betra enda eru fyrirliggjandi pantanir og verkefnastaða betri en nokkru sinni,“ segir í fréttatilkynningu.

Skeljungur og Klettur undirrituðu kaupsamning í október síðastliðnum með fyrirvörum um samþykki helstu birgja félagsins ásamt samþykki Samkeppniseftirlitsins. Um miðjan janúar lágu fyrir samþykki allra aðila og féll kaupandi þar með frá öllum fyrirvörum. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljanda í viðskiptunum en LEX lögmannsstofa var ráðgjafi Skeljar og Skeljungs.

Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts:

„Það eru mjög spennandi og metnaðarfull áform framundan hjá Kletti. Við ætlum okkur að halda uppbyggingu félagsins áfram á komandi árum og ná fram frekari vexti. Við munum skoða ýmsar leiðir til þess að útvíkka starfsemina og þjónustunetið. Við erum bjartsýn á íslenskan efnahag á næstu árum og gerum ráð fyrir að styðja áfram vel við uppbyggingu innviða hérlendis með okkar þjónustu. Það eru mikilvæg verkefni á dagskrá sem snúa meðal annars að orkuskiptum og aukinni stafrænni þjónustu eða sjálfvirknivæðingu við viðskiptavini okkar í samstarfi við okkar öflugu birgja.“

Knútur Grétar Hauksson, stjórnarformaður Kletts:

„Það er komið að tímamótum hjá félaginu og við fyrrum eigendur lítum stoltir um öxl enda hefur okkur tekist að byggja upp öflugt sölu- og þjónustufyrirtæki með okkar frábæra starfsfólki og traustu birgjum. Sú framtíðarsýn sem nýir eigendur hafa fellur vel að grunngildum fyrirtækisins og uppbyggingaráformin sem þeir hafa eru spennandi.“

Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs:

„Þetta eru spennandi kaup fyrir samstæðuna enda deila Skeljungur og Klettur sömu framtíðarsýn og gildum. Klettur verður rekinn sem sjálfstæð eining. Fyrirtækin þjónusta sömu atvinnugreinarnar en bjóða upp á mismunandi þjónustu og vöruúrval og með kaupunum er kominn vísir að alhliða þjónustufyrirtæki. Bæði fyrirtækin eru rótgróin og hafa einkaumboð fyrir leiðandi vörumerki á sínum sviðum.“

Frétt tekin af www.vb.is 10.02.2023

Aðrar fréttir