Þjónustusvið Kletts rekur vélaverkstæði ásamt sérbúnum þjónustubifreiðum fyrir vegaaðstoð og viðgerðir fjarri verkstæðinu. Alhliða þjónusta og smur fyrir fólksbíla, vörubíla, rútur, vinnuvélar o.fl.
Á vélaverkstæði Kletts starfar góður hópur valinkunnra manna hvort heldur sem verkefnin eru til lands eða sjós. Vélasvið Kletts býr yfir fullkomnu vélaverkstæði ásamt sérbúnum þjónustubifreiðum og vel menntuðu starfsliði.
Við bjóðum upp á löggildingu á ökuritum og hraðatakmörkurum fyrir allar gerðir vörubíla. Tveggja ára skoðun. Breytt dekkjastærð.
Neyðarþjónusta
Klettur heldur úti neyðarþjónustu allan sólahringinn allt árið, er þeirri þjónustu skipt niður á deildir til að tryggja að okkar viðskiptavinir fái þjónustu sem passar þörfum hvers og eins.
Klettur býður upp á smurþjónustu fyrir öll atvinnutæki og fólksbíla í Klettagörðum 8-10. Auk smur- og hjólbarðaþjónustu erum við með rafgeyma, rúðuþurrkur, rúðuvökva, ljósaperur og flest annað sem þurfa gæti.
Snjallþjónustan okkar er lausn sem hjálpar þér að bera kennsl á og einbeita þér að lykilatriðum sem þarf til að auka framleiðni og draga úr kostnaði við flotann þinn.Við bjóðum flotastjónunarkerfi frá bæði Scania og Caterpillar.
Klettur veitir tæknilegar upplýsingar til eigenda og þjónustuaðila vegna bifreiða og tækja sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Sendu okkur fyrirspurn með ósk um tæknilegar upplýsingar á netfangið tech@klettur.is eða hringdu í móttöku okkar í síma 590 5200 sem kemur þér í samband við sérfræðinga okkar.
Klettur Norðurland er staðsett að Hjalteyrargötu 8, 600 Akureyri en þar er rekin varahlutaverslun og þjónustuverkstæði.Opnunartími alla virka daga milli klukkan 08:00 til 17:00.Hafðu samband í síma 590 5230.