Klettur þjónar fjölbreyttum atvinnugreinum með þjónustu og sölu á tækjum og búnaði. Sem hluti af Styrkás samstæðunni vill félagið leggja sitt af mörkum til uppbyggingar samfélagsins og styðja verkefni sem skapa raunveruleg verðmæti fyrir fólk og umhverfi.
Styrkveitingar Kletts eru hluti af samfélagsábyrgð Styrkás samstæðunnar og fara fram í samræmi við sameiginlega styrkjastefnu sem gildir fyrir öll félög samstæðunnar. Með samfélagsstyrkjum styður Klettur við verkefni í almannaþágu, meðal annars á sviði íþrótta, æskulýðsmála, menningar, fræðslu og öryggis. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem stuðla að sjálfbærni, samfélagslegri þátttöku og sterkari innviðum í nærumhverfi félagsins.
Sótt er um styrk á vef Styrkás. Öllum umsóknum er svarað.
Nánari upplýsingar um styrkjastefnuna og umsóknarferlið má finna á heimasíðu Styrkás.
Fyrir frekari upplýsingar má senda fyrirspurn á styrkir@styrkas.is.