Nýverið voru fjórir starfsmenn Kletts heiðraðir í tilefni af tímamóta starfsafmælum sínum.
Nýlega tók Klettur við umboðinu fyrir Finlay. Finlay er eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði, þeir sérhæfa sig í þróun og framleiðslu á færanlegum brjótum, hörpum og færiböndum. Ístak fékk nýlega afhent fyrsta tækið frá Kletti, það er forbrjótur J1175E Hybrid sem bæði getur gengið fyrir diesel og rafmagni, ef landtenging er fyrir hendi.
Nýja M315 hjólagrafan hjálpar þér að vinna verkið hraðar. Sparaðu bæði tíma og kostnað með lágum viðhaldskostnaði, lengra þjónustutímabili og 100% daglegu viðhaldi á jörðu niðri. Fyrirferðalítil hönnun auðveldar vinnu þar sem vinnusvæði er takmarkað.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins tók nýlega við tveimur nýjum Scania körfubílum með körfum frá Bronto Skylift. Bílarnir eru útbúnir nýjustu tækni sem skiptir sköpum fyrir störf slökkviliðsmanna.
Enn og aftur hefur Scania unnið hin virtu „Green Truck“ verðlaun fyrir framúrskarandi nýtni og eldsneytishagkvæmni. Það sem af er ári er Scania Super mest nýskráði vörubíllinní flokki 2 hér á landi og hefur hann fengið afar jákvæðar viðtökur.
Klettur bauð nýverið viðskiptavinum á kynningu sem bar yfirskriftina Hreinni framtíð. Þar var kynnt hvað Klettur er að bjóða í tengslum við orkuskiptin en sýna um leið þann mikla árangur sem hefur náðst með þróun dísilvéla sem stöðugt hafa verið að minnka kolefnisspor sitt og skila hreinni útblæstri.
Nýlega opnuðum við nýja og glæsilega þjónustumiðstöð við Einhellu 1 í Hafnarfirði. Þar er að finna vel útbúið verkstæði fyrir vinnuvélar og vörubíla, varahlutaverslun og hjólbarðaverkstæði fyrir vöru- og fólksbíla ásamt einu fullkomnasta smurkerfi landsins.
Hybrid-kerfið sem Scania hefur þróað, samanstendur af háþróaðri dísilvél og rafmótor sem tryggir allt að 92% minni losun á CO2. Ef aðeins er keyrt á rafmótor er losun um 98% minni.
Í gær skráðum við fyrsta vörubílinn í nýrri skoðunarstöð Frumherja að Einhellu 1a í Hafnarfirði. Þjónustumiðstöð okkar þar mun brátt opna dyrnar fyrir viðskiptavinum og ríkir mikil tilhlökkun.
Innbyggð vigtakerfi eru lykillinn að sparnaði í efniskostnaði. CAT Payload er vigtakerfi sem er innbyggt í hjólaskóflur, beltagröfur, búkollur og grjóttrukka.