Klettur leitar að öflugum sölufulltrúa til að ganga til liðs við varahlutaverslun sína. Leitað er að einstaklingi sem getur myndað sterk og góð tengsl við viðskiptavini og viðhaldið víðtæku og áhrifaríku tengslaneti innan fyrirtækis sem utan.

Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi bifvélavirkja á vélaverkstæði á Akureyri. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndar aðstöðu.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi bifvélavirkja á vélaverkstæði á Akureyri. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndar aðstöðu.
Vegna góðrar verkefnastöðu og aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða öfluga bifvélavirkja eða vélvirkja á verkstæði og smiðju okkar í Vesturhrauni Garðabæ. Um er að ræða framtíðarstarf í traustu og öruggu umhverfi.

Kristinn Ari Hermannsson - Vélvirki
Kristinn er mikið í bilanagreiningum og viðgerðum á vinnutækjum og segir mikilvægt að vera alltaf á tánum. „Það eru miklir möguleikar á að sækja sér símenntun og við erum hvattir til að bæta við okkur þekkingu.
Magnús sinnir öllum helstu viðgerðum á Scania-vörubílum, allt frá mótorviðgerðum yfir í gírkassa, bilanagreiningar og rafmagnsviðgerðir. „Hvað elska ég við þetta? Það er held ég bara hvað þetta er fjölbreytt og hvað það er gott starfsfólk hérna og góður mórall.“
„Dagurinn er oft mjög fljótur að líða, því þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf,“ segir Kristinn sem gerir mikið af því að gera við loftpressur. Hann segir að fagleg vinna á verkstæðinu sé tryggð með stöðugri símenntun starfsmanna.
Hægt er að sækja um í gegnum umsóknarferlið hér að neðan. Klettur ábyrgist að fyllsta trúnaðar sé gætt með allar umsóknir. Umsóknin fellur úr gildi eftir þrjá mánuði nema annars sé óskað. Umsækjandi ábyrgist að upplýsingar séu réttar og gefnar samkvæmt bestu vitund.
Boðið er upp á úrvals aðstöðu til viðgerða og viðhalds, gott tæknilegt umhverfi, ásamt miklum möguleikum á þjálfun og endurmenntun. Meðal annars stendur okkar starfsmönnum til boða að skrá sig í fjarnám við CAT U – Caterpillar University og Scania Academy TMS þar sem þeir geta sótt nám við skóla með alþjóðlega EFMD CEL vottun.