Ný kyn­slóð Scania raf­magns­vöru­bíla er sniðin að þörfum hvers við­skipta­vinar

Ný kynslóð rafmagnsvörubíla hjá Kletti

Rafvæðing bílaflotans hefur verið hröð undanfarin ár og nú er rafvæðing þungaflutninga einnig að taka verulega við sér. Hjá Kletti, umboðsaðila Scania á Íslandi, er komin í sölu þriðja kynslóð rafmagnsvörubíla Scania sem býður upp á fjölbreyttar útfærslur fyrir ólík verkefni.

Bílarnir henta meðal annars fyrir vörudreifingu, sorphirðu og þunga flutninga og hægt er að sérsníða þá eftir þörfum hvers viðskiptavinar. Boðið er upp á mismunandi rafhlöðustærðir, rafmótora, öxlastillingar og drifbúnað, þar á meðal tveggja og fjögurra öxla bíla. Heildardráttargeta getur verið allt að 74 tonn.

‍

‍

Ein af áherslum Kletts er að velja rafhlöðustærð og útfærslu út frá raunverulegri notkun. Stærri rafhlaða gefur meiri drægni en er jafnframt þyngri og getur því haft áhrif á burðargetu. Með hermiforriti frá Scania er hægt að greina akstursleiðir, þyngd, hitastig og aðra þætti til að finna þá lausn sem hentar hverju verkefni best.

Reynslan af fyrstu rafmagnsvörubílum Scania hér á landi hefur verið góð og með nýju kynslóðinni hefur notkunarsviðið stækkað verulega. Rafdrifið býður jafnframt upp á hljóðlátari og mýkri akstur, góða hröðun og endurheimt hemlunarorku. Hægt er að hraðhlaða bílana og tæknin heldur áfram að þróast hratt.

‍

‍

Samhliða sölu nýju bílanna hefur Klettur byggt upp sérhæfða þjónustu. Starfsfólk verkstæðisins hefur hlotið sérstaka þjálfun í háspennukerfum og fyrirtækið hefur fjárfest í sérverkfærum og aðstöðu til að sinna viðhaldi og viðgerðum á rafmagnsvörubílum.

Rafmagnsvörubílarnir bætast við aðrar lausnir Scania fyrir fyrirtæki sem vilja draga úr umhverfisáhrifum, þar á meðal metanvörubíla og dísilbíla sem geta gengið fyrir 100% HVO-lífdísil.

Lesið nánar hér.

‍

Aðrar fréttir

Sjá meira