
Klettur hefur undirritað leigusamning við G. Hjálmarsson um nýja þjónustumiðstöð að Goðanesi 2 á Akureyri. Um er að ræða 1.340 fermetra húsnæði á góðum stað, sem mun marka stórt skref í uppbyggingu félagsins á Norðurlandi.
Með flutningnum skapast tækifæri, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Þessi uppbygging skapar einnig aukin tækifæri til að víkka þjónustuframboð og styrkja enn frekar starfsemi Kletts á svæðinu.
Undirbúningur er þegar hafinn og unnið er að því að aðlaga húsnæðið að starfsemi fyrirtækisins. Stefnt að því að opna nýja þjónustumiðstöð Kletts fyrir sumarið.
Ljóst er að framundan eru spennandi tímar í rekstri félagsins á Akureyri.







