Klettur komin í nýtt og stærra húsnæði á Akureyri

„Við erum að stækka við okkur á Akureyri og flytja í stærra og hentugra húsnæði þar sem allar aðstæður eru til fyrirmyndar og henta betur ört vaxandi umsvifum,“ segir Sigurjón Örn Ólafsson.

Flutningurinn að Goðanesi 2 er stórt skref í uppbyggingu félagsins á Norðurlandi. Hingað til hefur starfsemin verið að Hjalteyrargötu, en að sögn Sigurjóns var tíminn kominn til að færa sig í húsnæði sem betur rúmar starfsemina.

„Starfsemi Kletts hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og þörf var fyrir stærra og betra húsnæði. Nýja staðsetningin gefur okkur svigrúm til að þjóna viðskiptavinum betur, bæði hvað varðar þjónustu og afkastagetu,“ segir hann.

Hann bætir við að nýja aðstaðan muni einnig bæta vinnuaðstæður starfsfólks og styðja við áframhaldandi vöxt: „Við sjáum fram á að þurfa að fjölga starfsfólki til að mæta aukinni eftirspurn á Norðurlandi. Þetta er spennandi skref í þróun Kletts á svæðinu.“

Lesa meira kaffid.is

Aðrar fréttir

Sjá meira