Starfsafmæli heiðruð hjá Kletti

Nýverið voru fjórir starfsmenn Kletts heiðraðir í tilefni af tímamótastarfsafmælum sínum. Um er að ræða starfsmenn sem hafa lagt fyrirtækinu lið um áratugaskeið og átt stóran þátt í þeirri uppbyggingu, þjónustu og árangri sem einkennt hefur starfsemi Kletts í gegnum árin.

Þeir starfsmenn sem voru heiðraðir að þessu sinni eru:

  • Snorri Árnason, sem fagnar 35 ára starfsafmæli
  • Aðalsteinn Leví, sem fagnar 30 ára starfsafmæli
  • Sigurður Vilhjálmsson, sem fagnar 10 ára starfsafmæli
  • Birgir Bjarnason, sem fagnar 10 ára starfsafmæli

Langur starfsaldur er skýr vitnisburður um þann metnað, fagmennsku og hollustu sem þessir starfsmenn hafa sýnt í störfum sínum. Með framlagi sínu hafa þeir átt mikilvægan þátt í að styrkja starfsemi Kletts og stuðla að þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð.

Við hjá Kletti erum afar þakklát fyrir þeirra framlag í gegnum árin og þann mikilvæga þátt sem þeir hafa gegnt í þróun og vexti fyrirtækisins. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga og þökkum þeim fyrir samstarfið og ómetanlegt framlag til fyrirtækisins.

Til hamingju með starfsafmælin og kærar þakkir fyrir ykkur!

Á myndinni eru þessir góðu félagar okkar.

Aðrar fréttir

Sjá meira