
Sterk sala og lykilhlutverk í stærstu framkvæmdum ársins 2025
Árið 2025 var öflugt ár fyrir Caterpillar á Íslandi. Vélar frá CAT komu að stærstu og mest krefjandi framkvæmdum ársins á sama tíma og sölutölur sýna sterka stöðu á markaði. Á bak við þann árangur stendur öflug uppbygging Kletts sem sölu og þjónustuaðila vörumerkisins hér á landi, enda gegnir Klettur lykilhlutverki sem samstarfsaðili verktaka um land allt.
Á árinu 2025 voru seldar 41 Caterpillar vél, sem jafngildir um 25% markaðshlutdeild í vinnuvélum. Það er umtalsverð aukning frá fyrra ári þegar seldar voru 24 vélar og markaðshlutdeildin var um 14%. Þessi þróun endurspeglar sterka stöðu CAT á íslenskum markaði og traust viðskiptavina í stærstu verkefnum landsins.
Sem dæmi um helstu verkefni ársins þar CAT vélar frá Kletti léku lykilhlutverk við uppbyggingu innviða má nefna:
Hvammsvirkjun - CAT í þungamiðju orkuframkvæmda
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun hófust á árinu og marka tímamót í orkuframleiðslu landsins. Fossvélar annast verkið og þar eru CAT-vélar áberandi á verkstaðnum.
Meðal þeirra tækja sem nýtt hafa verið við framkvæmdirnar eru CAT D8 jarðýta, CAT 735 búkollur, CAT 395 beltagrafa og CAT 982 hjólaskófla. Um er að ræða öflugar vinnuvélar sem hannaðar eru til að takast á við mikla jarðvinnu og krefjandi aðstæður þar sem afköst og ending skipta sköpum.

Öryggisverkefni á Vestfjörðum
Á Vestfjörðum vann Borgarverk að gerð snjóflóðagarða við Flateyri, mikilvægu öryggisverkefni fyrir samfélagið. Þar gegndi CAT D8 jarðýtan lykilhlutverki. Slík verkefni krefjast trausts búnaðar sem stenst bæði mikið jarðvegsálag og fjölbreytt veðurfar.

Uppbygging í landeldi
Á Reykjanesi vann Suðurverk að byggingu nýs landeldis fyrir Samherja. Við framkvæmdina voru meðal annars notaðar CAT 374 og CAT 395 beltagröfur. Verkefnið er skýrt dæmi um þá miklu uppbyggingu sem nú á sér stað í nýjum atvinnugreinum og hvernig CAT-vélar styðja við hana.

Þjónusta sem styður við árangur
Árangur CAT á Íslandi byggir ekki eingöngu á gæðum vélanna heldur einnig öflugriþjónustu og góðu samstarfi við viðskiptavini. Þar skiptir fagleg þjónusta starfsfólks Kletts sköpum. Öflugt þjónustuteymi, gott aðgengi að varahlutum, framúrskarandi stafræn þjónustaog fagleg ráðgjöf tryggja gott viðhald véla og hámarka uppitíma þeirra í rekstri þannigverkefni séu unnin á hagkvæman hátt og gangi samkvæmt áætlun.
Árangur ársins hefur sýnt fram á að þegar kemur að stærstu og mikilvægustu framkvæmdum landsins eru Caterpillar-vélar í fremstu röð.








