Scania rafmagnsvörubílar

Ný kynslóð rafmagnsvörubíla frá Scania

Fá ráðgjöf

Rétt útfærsla fyrir þinn rekstur

Ný kynslóð rafmagnsvörubíla frá Scania býður upp á fleiri möguleika en áður. Með fjölbreyttum útfærslum, rafhlöðustærðum og aflrásum er hægt að laga bílinn að ólíkum verkefnum allt frá vörudreifingu og sorphirðu til þungaflutninga.

Hjá Kletti hjálpum við þér að finna réttu útfærsluna miðað við notkun, akstur og þarfir þíns reksturs.

560 kWh

Rétt rafhlaða fyrir rétt verkefni

Stærsta rafhlaðan er ekki alltaf besti kosturinn. Stærri rafhlaða getur skilað meiri drægni en hún eykur jafnframt þyngd bílsins og getur því dregið úr burðargetu.

Mikilvægt er að finna rétt jafnvægi milli drægni, burðargetu og orkuþarfar, allt eftir því hvaða verkefnum bíllinn á að sinna.

Ný kynslóð rafmagnsvörubíla Scania býður upp á allt að
560 kWh rafhlöðugetu
Allt að 560 km drægni*
Allt að 74 tonna heildarþyngd bíls og eftirvagns
*Drægni ræðst meðal annars af útfærslu bílsins, þyngd, akstursleið, veðri og notkun.

Af hverju rafmagn?

Enginn útblástur við akstur
Hljóðlátur og umhverfisvænni kostur fyrir daglegan rekstur.
Hagkvæmur rekstur
Mikil orkunýtni getur skilað lægri rekstrarkostnaði.
Fleiri tækifæri
Rafmagnsvörubílar geta opnað á ný verkefni þar sem gerð er krafa um rafknúin ökutæki.
Þægilegri akstur
Hljóðlátur akstur eykur þægindi ökumanns
Hraðhleðsla
CCS2-hraðhleðsla styttir hleðslutímann og auðveldar hleðslu yfir vinnudaginn.

Gæti rafmagn hentað þínum rekstri?

Með hermiforriti Scania getum við greint akstur og daglega notkun bílsins og metið út frá því orkuþörf, drægni og hvaða útfærsla hentar þínum rekstri best.

Við skoðum þinn rekstur og hjálpum þér að finna réttu lausnina.

Meira en bara vörubíll

Að velja rafmagns vörubíl snýst um meira en bílinn sjálfan. Hjá Kletti færðu ráðgjöf við val á réttri útfærslu, hleðslulausnum og þeirri þjónustu sem þarf til að halda bílnum gangandi.
Rafmagnsvörubílar Scania hafa verið í notkun á Íslandi í rúm þrjú ár og sinna nú þegar fjölbreyttum verkefnum við íslenskar aðstæður.

Hafðu samband við sérfræðinga Scania hjá Kletti. Við förum yfir þín verkefni og hjálpum þér að finna bíl sem hentar þínum rekstri.

Söluteymi

Bjarni Arnarson

Bjarni Arnarson

Framkvæmdastjóri sölusviðs

Ívar Atli Brynjólfsson

Ívar Atli Brynjólfsson

Sölufulltrúi

Jóhannes Georgsson

Jóhannes Georgsson

Sölustjóri