Starfsmaður í smurþjónustu

Óskum eftir að ráða vanan starfsmann í smurþjónustu Kletts. Starfið felur í sér smurþjónustu og smáviðgerðir á öllum gerðum bifreiða og vinnuvéla með áherslu á vörubifreiðar.

Um er að ræða framtíðarstarf í traustu og öruggu umhverfi. Unnið er á dag- og kvöldvöktum 2/1.

Hæfniskröfur:

  • Einstaklingur vanur vinnu á smurstöð
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Íslenskukunnátta
  • Vönduð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl og umsóknir skulu berast til Sigurjóns Arnar Ólafssonar, þjónustustjóra, á netfangið soo@klettur.is.

Um Klett:

Klettur er leiðandi í þjónustu og sölu vörubíla, vinnuvéla og tækja. Hjá Kletti vinna yfir 100 manns við þjónustu og sölu á m.a. Scania og Caterpillar tækjum og vélum, IR loftpressum og Goodyear hjólbörðum.

Gildi Kletts eru heiðarleiki, fagmennska, liðsheild og staðfesta.

Aðrar fréttir