Ný og spennandi jarðýta frá CAT

Páll Theódórsson frá Kletti, Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks og Snorri Árnason frá Kletti við afhendinguna á vélinni.

Nýja CAT D6 XE rafdrifna jarðýtan er nú fáanleg hjá Kletti. Fulltrúar Kletts fengu tækifæri til að prófa vélina í Danmörku fyrr á þessu ári og var það niðurstaða þeirra að hún stæðist allar væntingar og gott betur. Í kjölfarið festi Suðurverk kaup á slíkri vél sem var afhent nú á dögunum.

Snjöll og umhverfisvæn hönnun

Kostir CAT D6 XE eru fjölda margir. Til að mynda stórbætt eldsneytisnýting og lægri viðhaldskostnaður en á eldri gerðum. Um er að ræða fyrstu rafdrifnu jarðýtu í heimi með drifhjólin uppi. Hefðbundin dísilvél, CAT C9.3B, knýr rafalinn sem framleiðir raforku fyrir rafmótorinn sem knýr drifhjólin. Búnaðurinn í CAT D6 XE er með allt að 90% færri hreyfanlega hluti en í hefðbundinni skiptingu og eru hraðabreytingarnar stiglausar.

Snorri Árnason hjá Kletti er að vonum ánægður með þessa nýjung á markaðnum. „D6 XE jarðýtan er frábær viðbót við þá breiðu línu vinnuvéla sem við bjóðum upp á enda umhverfisvænni, sem gerir hana að jákvæðu skrefi í átt að umhverfisvænni framkvæmdum. Hún er sparneytin og öflug á sama tíma og ekki spillir fyrir að viðhaldskostnaðurinn er miklu minni, eða allt að 12% lægri sem er vissulega eitthvað sem menn eru að horfa í þegar fjárfest er í stærri vélum.“

Rýmra og þægilegra starfsumhverfi

Með tilkomu CAT D6 XE jarðýtunnar býðst nú valkostur sem veitir ökumanninum þægilegra starfsumhverfi, en markmiðið með endurhönnun ökumannshússins var að setja algjörlega ný viðmið hvað varðar útsýni og hvers konar þægindi. Rýmra er um ökumanninn, meira pláss fyrir farangur auk þess sem gluggaflöturinn er 15% stærri en í eldri gerðum. Miðstöðin er einnig sérstaklega útbúin til að hreyfing sé á loftinu í ökumannshúsinu og kemur þannig í veg fyrir móðu og frost á gluggum sem kemur sér sérstaklega vel við íslenskar aðstæður. Eins ber að nefna bætta hljóðeinangrun um þrjú desíbel og öfluga dempara sem minnka hristing um borð, en hvort tveggja gefur ökumanninum aukna vellíðan í starfi.

Öryggi og afköst í forgrunni

Snertiskjár með notendavænu viðmóti er til staðar í CAT D6 XE og með forritinu getur ökumaðurinn vistað þær stillingar sem henta best við verkið. Háskerpu baksýnismyndavél og Bluetooth tenging við farsíma ökumannsins eru meðal þeirra eiginleika sem snúa að öryggi en fjölmargar öryggisútfærslur prýða heildarhönnunina. Til að mynda eru handföng upp við þakið báðum megin á ökumannshúsinu auk fallvarnarbúnaðar sem hvort tveggja er til þess gert að auka öryggi ökumannsins.  

„Ég hvet þá sem eru að huga að því að uppfæra að kynna sér kosti CAT D6 XE. Þetta er lipur jarðýta þar sem horft hefur verið í hvert smáatriði við hönnunina. Hún er einstaklega kraftmikil og ýmsar snjallar útfærslur til staðar sem hámarka afkastagetu hennar. Öryggisatriðin eru upp á tíu og vellíðan ökumannsins og almenn þægindi höfð að leiðarljósi. Við hjá Kletti gefum þessari vél hæstu einkunn og erum stolt af því að kynna hana til leiks á íslenskum vinnuvélamarkaði“ segir Snorri að lokum.

Aðrar fréttir