Finnbogi Þórarinsson til liðs við Klett.

Klettur – sala og þjónusta ehf. festi nýverið kaup á starfsemi FS Mótor ehf. af Finnboga Þórarinssyni, stofnanda og eiganda fyrirtækisins, sem jafnframt hefur hafið störf á þjónustuverkstæði afl- og vinnuvéladeildar Kletts.

Klettur, sem um árabil hefur verið leiðandi í sölu og þjónustu á vinnuvélum, aflvélum í skip og báta og rafstöðvum, hyggst með þessu auka enn frekar við þjónustuframboð sitt. Finnbogi Þórarinsson er vel kunnur á þessu sviði, hann hefur frá því laust fyrir aldamót starfrækt FS Mótor og sérhæft sig í viðhaldi, viðgerðum og endurgerð skipa- og bátavéla.

Að sögn Finnboga hefur hann í gegnum tíðina unnið mikið við CAT-vélar og ávallt átt mikið og gott samstarf við Klett sem og forvera fyrirtækisins, vélasvið Heklu. „Það er gott að hafa núna meira afl á bak við sig; neyðarþjónustu, sólarhringsvakt og aðgengi í lager auk þess sem það verður gott að losna við alla pappírsvinnu og þess háttar“ sagði Finnbogi og kvaðst mjög ánægður með þessar breytingar á högum sínum.

Aðalsteinn Jóhannsson hefur verið þjónustustjóri afl- og vinnuvéladeildar Kletts sl. fjögur ár; hann segir mikinn feng í Finnboga fyrir sitt lið sem nú telur hátt í 20 manns. „Ég lít á þetta ekki ósvipað því að stýra fótboltaliði – við þurfum sterka liðsheild og öfluga einstaklinga í allar stöður. Við gerum áætlanir fram í tímann og Finnbogi er reynslubolti sem hefur lengi verið á óskalistanum hjá okkur, ég veit vel hvað hann getur og koma hans mun styrkja Klett, ekki síst hvað varðar þjónustu við fiskiskipaflotann“.

Að sögn Aðalsteins hefur Klettur á að skipa metnaðarfullu starfsfólki sem leitast alltaf við að finna hagkvæmustu lausnir fyrir viðskiptavini sína. Þjónustuverkstæði afl- og vinnuvéladeildar er með vakt allan sólarhringinn, deildin er mjög tæknivædd og sinnir m.a. bilanagreiningu gegnum fjargæslubúnað hjá 8–10 fiskiskipum. „Þetta einfaldar bilanaleit og styttir verulega þann tíma sem skipin þurfa að staldra við í landi vegna viðhalds og viðgerða“ segir Aðalsteinn.

Á bilinu 160–170 vinnuvélar eru einnig búnar tölvum sem þjónustuverkstæðið getur tekið yfir gegnum netið til eftirlits og greininga. Loks má nefna að afl- og vinnuvéladeild Kletts sinnir eftirliti og viðhaldi rafstöðva víða um land samkvæmt þjónustusamningum við sjúkrahús, Isavia, Mílu og fleiri aðila.

Finnbogi Þórarinsson er kominn til liðs við Klett.

Aðalsteinn Jóhannsson, þjónustustjóri CAT.

Aðrar fréttir