Klettur á Bauma
Starfmenn Kletts verða á Bauma dagana 7.-11. apríl 2025. Þar verða aðilar frá okkar helstu vörumerkjum að kynna nýjustu lausnir, tækninýjungar og þróun.

Í ár fögnum við 30 ára samstarfi við Scania á Íslandi. Fyrsti Scania bíllinn, R143 Streamline, kom til landsins í maí 1995 og var afhentur fyrirtækinu ET. Dóri Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur, var fyrsti ökumaður bílsins. Það var því viðeigandi að fá að fara á rúntinn með Dóra sjálfum.