Viðtal við Geir í Fréttablaðinu varðandi sumardekk

Dekk er ekki það sama og dekk þó það sé svart

Hjólbarðasvið Kletts býður upp á óendanlega möguleika þegar hjólbarðar eru annars vegar. Félagið hefur verið með umboð fyrir Goodyear dekkin síðan 1952, sem setur mörkin sem aðrir á markaðnum vilja fylgja.

Goodyear er það besta í dekkjum, viljum við meina. Það merki hefur komið mjög vel út hvað varðar lítið hljóð í dekkjunum. Þau þykja einstaklega hljóðlát og Goodyear hefur verið að leggja mikla áherslu á það fyrir utan öryggið auðvitað. Það er náttúrulega alltaf númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Geir Ómarsson, rekstrarstjóri hjólbarða hjá Kletti.

Félagið hefur verið umboðs-, sölu- og þjónustuaðili fyrir Goodyear hjólbarða frá árinu 1952 en það nýjasta frá fyrirtækinu eru dekk sem henta einstaklega vel fyrir rafmagnsbíla. Er nema von að það sé sagt að Goodyear setji mörkin sem aðrir á markaðnum vilja fylgja. „Með þessari rafbílavæðingu þá vill fólk ekki hafa dekkjahljóð þar sem bílarnir eru orðnir lágværir. Goodyear hefur nýlega komið með enn hljóðlátari dekk á markað sem kallast „SoundComfort“. Þá eru dekkin með sérstakri hljóðeinangrun inni í dekkjunum sem dempa veghljóð enn þá meira. Til eru sumardekk og vetrardekk í þeirri línu.“

Töluvert er að gera hjá Kletti þessa stundina og mikil læti og mikið fjör á dekkjaverkstæðinu. Geir segir að hann hvetji viðskiptavini Kletts til að fara frá heilsársdekkjunum og yfir í sumardekk. „Við mælum með, við okkar viðskiptavini, að þeir skipti og séu á sumardekkjum á sumrin. Þau hemla miklu betur heldur en heilsársdekk. Heilsársdekk eru sæmileg dekk við allar aðstæður en ekkert mikið meira. Það er miklu betra að vera á góðum sumardekkjum á sumrin og góðum vetrardekkjum á veturna, það hámarkar öryggi.

Við gerðum prófanir úti á Kvartmílubraut fyrir ekki svo löngu síðan. Þá vorum við með alveg eins bíla en á mismunandi dekkjum. Við fórum upp í 80 km/klst. og snögghemluðum og það munaði allt að 12 metrum á hemlunarvegalengdinni á sumar- og heilsársdekkjum. Það getur skipt sköpum þegar mest á reynir.

Þetta kom mér virkilega á óvart og hafði ég aldrei keyrt á öðru en á heilsársdekkjum en var fljótur að skipta yfir,“ segir Geir.

Hann segir að vorið sé ákaflega skemmtilegur tími enda sé ys og þys þegar skipt er um dekk. „Við erum eitt af þessum stóru fyrirtækjum í dekkjunum og núna er sannarlega komið að öðrum af hápunktum ársins – þegar viðskiptavinir koma til okkar að skipta yfir á sumardekk. Það eru yfirleitt mikil læti þegar þetta gengur yfir en jafnframt mikið fjör.“ Klettur er að hanna kerfi svo hægt sé að panta tíma á netinu og segir Geir að stefnan sé að það verði klárt fyrir næstu vertíð í haust.

Eitt símtal og við sjáum um afganginn

Klettur er með dekkjahótel sem Geir segir að sé alltaf að verða vinsælla og vinsælla. „Þá getur fólk sloppið við að geyma dekkin í skúrnum hjá sér og geymt eitthvað annað en dekk þar inni. Það er mjög sniðug lausn að geyma dekkin sín og er dekkjahótelið alltaf að stækka hjá okkur. Í rauninni þarf að taka eitt símtal á okkur einu sinni og við sjáum um afganginn.“

Klettur býður upp á alhliða hjólbarðaþjónustu á dekkjaverkstæðum sínum, hvort sem það er í Klettagörðum 8-10, Hátúni 2a, Viðarhöfða 6 eða Suðurhrauni 2b í Garðabæ. Viðarhöfðinn er nýjasta verkstæðið en það stærsta er í Klettagörðum þar sem hægt er að fá dekk undir lítinn fólksbíl og upp í stærstu vörubíla og tæki.

Klettur hefur opnað nýtt dekkjaverkstæði á Viðarhöfða 6. Þar tekur Anton Ólafsson glaður á móti viðskiptavinum með heitt á könnunni.

„Heilsársdekk hafa verra grip en sumardekk við sumaraðstæður, sem kemur niður á hemlunarvegalengd, gripi í beygjum og svo framvegis. Einnig eyða sumardekk minna eldsneyti sem þýðir einnig lengra drægi þegar kemur að rafmagnsbílum. Við mælum með góðum vetrardekkjum og góðum sumardekkjum fyrst og fremst af öryggisástæðum.

Þótt dekk séu svört og rúlli er dekk ekki það sama og dekk. Það er betra að spara ekki um of í dekkjum. Það þarf að uppfylla viss gæði og hafa góða endingu. Ódýr dekk hafa yfirleitt meira viðnám, eru þyngri og eyða þar af leiðandi meira eldsneyti. Þegar allt kemur til alls þá er lítill sparnaður af því að velja ódýrasta kostinn.“

Geir Ómarsson, rekstrarstjóri hjólbarða hjá Kletti

⇒  Smelltu hér og til að sjá hvaða tegundir og verð við getum boðið þér!

⇒ Smelltu hér til að sjá staðsetningu dekkjaverkstæða okkar!

Þessi grein birtist í Fréttablaðinu 17.04.2019

Aðrar fréttir