Ný björgunarskip Landsbjargar
Hvert skip er útbúið tveimur 750 hestafla dísilvélum frá Scania, sem samanlagt skila 1.500 hestöflum. Auk þess eru skipin með ZF gírbúnaði og Hamilton Jet-drifum, sem auka stjórnhæfni og árangur í björgunaraðgerðum.

Í ár fögnum við 30 ára samstarfi við Scania á Íslandi. Fyrsti Scania bíllinn, R143 Streamline, kom til landsins í maí 1995 og var afhentur fyrirtækinu ET. Dóri Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur, var fyrsti ökumaður bílsins. Það var því viðeigandi að fá að fara á rúntinn með Dóra sjálfum.