Klettur framúrskarandi tólfta árið í röð
Við hjá Kletti erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki frá Creditinfo tólfta árið í röð.

Í ár fögnum við 30 ára samstarfi við Scania á Íslandi. Fyrsti Scania bíllinn, R143 Streamline, kom til landsins í maí 1995 og var afhentur fyrirtækinu ET. Dóri Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur, var fyrsti ökumaður bílsins. Það var því viðeigandi að fá að fara á rúntinn með Dóra sjálfum.