Nýtt bókunarkerfi og stærra dekkjahótel

Þegar kemur að akstri í snjó, hálku og vetrarfærð er öryggi efst í huga okkar hjá Kletti. Því mælum við eindregið með því að fólk velji vönduð og traust vetrardekk undir bíla sína enda eru ódýrari dekk gjarnan með meira plast blandað í gúmmíið sem gerir þau bæði harðari og hálli í vetraraðstæðum,“ segir Geir Ómarsson, rekstrarstjóri hjólbarða hjá Kletti.

Hann mælir líka hiklaust með að ökumenn séu á góðum vetrardekkjum á veturna í stað heilsársdekkja enda séu heilsársdekk hvorki með jafn gróft munstur né eins mjúkt gúmmí.

„Með því að vera á réttum dekkjum fyrir hvern árstíma; góðum, öruggum vetrardekkjum á veturna og góðum sumardekkjum á sumrin, fæst betri ending á dekkjum og bíllinn eyðir minna, sem, þegar upp er staðið, veldur umhverfisvænni lífsstíl,“ segir Geir.

Nýtt og stærra dekkjahótel

Klettur opnaði á dögunum nýtt og enn stærra dekkjahótel.

„Dekkjahótel Kletts er nú búið nýjum rekkum sem eru sérstaklega hannaðir til að geyma dekk en áður vorum við með dekkin í gámum. Það breytir ásýnd fyrirtækisins og eykur öryggi og þægindi starfsfólks við vinnuna. Í nýju rekkunum fer klárlega betur um dekkin, ekki síst þau sem eru á felgum,“ segir Geir á dekkjahótelinu, sem verður æ vinsælla.

„Það er alltaf að aukast að fólk velji að geyma dekkin sín á dekkjahóteli enda er víða bannað að vera með dekk í sameignum og margir vilja ekki geyma dekk í geymslunni heima,“ upplýsir Geir og kostir þess að geyma dekk á dekkjahóteli Kletts eru ótvíræðir.

„Það er mikill kostur fyrir viðskiptavini að þurfa ekki að rogast með dekk á milli bæjarhluta, skíta út bílinn og jafnvel rispa innréttingu bílsins með nagladekkjum,“ segir Geir.

Á nýju dekkjahóteli Kletts eru sérsmíðaðir rekkar sem fara einkar vel með dekk og felgur.

Bókunarkerfið sparar tíma

Hjá Kletti var nýverið tekið upp bókunarkerfi sem slegið hefur í gegn hjá viðskiptavinum.

„Á dekkjatarnatímum var iðulega mikið álag á símkerfinu okkar og erfitt að ná í gegn. Nýja bókunarkerfið léttir á því og hefur hitt í mark enda mikil hagræðing, tímasparnaður og þægindi. Nú geta viðskiptavinir bókað tíma til dekkjaskipta á netinu og þurfa ekki lengur að bíða tímunum saman í röð. Í stað þess eiga þeir pantaða fastan tíma og hinkra yfir góðum molasopa á meðan skipt er um dekk á bílnum sem tekur ekki lengri tíma en hálftíma,“ segir Geir en til að bóka tíma er farið inn á heimasíðu Kletts, klettur.is.

Dekkjahótel Kletts er vinsælt enda þægilegt að losna við umstangið.

Viðurkenndir og vandaðir hjólbarðar

Bandaríski dekkjaframleiðandinn Goodyear/Dunlop er flaggskip Kletts í dekkjum en fyrirtækið selur einnig dekk frá Sava og Nexen.

„Nexen er einn hraðast vaxandi dekkjaframleiðandi í heiminum og er nýtt merki hjá Kletti. Dekkin eru framleidd í Suður-Kóreu og þykja einstaklega góð á frábæru verði. Nexen hefur komið vel út úr könnunum og bílaframleiðendur í heiminum velja þau í auknum mæli undir nýja bíla sína sem er ákveðinn gæðastimpill. Gúmmí í dekkjunum er vandað og vetrardekk Nexen henta einkar vel fyrir íslenskar aðstæður,“ upplýsir Geir.

Sava er undirmerki Goodyear og sömuleiðis framúrskarandi hjólbarðar.

„Þegar Goodyear kemur með nýjan dekkjaárgang verður gamla týpan að Sava, sem eru klárlega góð dekk líka,“ segir Geir.

Frá Goodyear fást nú einnig hljóðlátari dekk með hljóðeinangrun.

„Þau henta einstaklega vel fyrir hljóðláta bíla en það á við um marga nýja bíla og ekki síst hybrid- og rafmagnsbíla. Á dekkjunum kemur fram fjöldi desibela sem gefur til kynna hversu mikið veghljóð þau gefa frá sér í akstri. Þeir sem eru á rafmagnsbílum leggja mikið upp úr því að vera á hljóðlátum dekkjum enda takmarka þau áreiti af þungum dekkjanið inni í bílnum,“ útskýrir Geir.

Klettur er í Klettagörðum 8-10. Símanúmer 590 5100. Tímapantanir og nánari upplýsingar á klettur.is

Nýtt dekkjahótel Kletts hefur aukið öryggi og þægindi starfsfólks til muna.

*Frétt sem birtist í Fréttablaðinu 23.10.219

Aðrar fréttir