Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi á verkstæði Kletts. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Klettur er leiðandi í sölu og þjónustu vörubíla, vinnuvéla og hjólbarða. Hjá Kletti vinna rúmlega 120 manns við þjónustu og sölu á meðal annars Scania og Caterpillar tækjum og vélum, IR loftpressum og Goodyear hjólbörðum. Hjá Kletti er mikið lagt upp úr menntun starfsmanna. Til að mynda njóta starfsmenn verkstæðisins símenntunar sem er fólgin í fjölda námskeiða hjá helstu birgjum félagsins.
Gildi Kletts eru heiðarleiki, fagmennska, liðsheild ogstaðfesta.
Nánari upplýsingar veitir Baldur Þorgeirsson, þjónustustjóri, bt@klettur.is
Starfsstöðvar Kletts eru sex talsins. Húsnæði félagsins í Klettagörðum 8-10 er stærst en það er sérhannað fyrir starfsemina og þá úrvalsþjónustu sem Klettur státar af. Klettur Norðurland opnaði á Akureyri árið 2018 en þar er rekin varahlutaverslun og þjónustuverkstæði. Hjólbarðaverkstæði Kletts eru í Klettagörðum, Suðurhrauni Garðabæ, Lynghálsi og í Hátúni og hjólbarðalager í Holtagörðum. Viðskiptavinir í öðrum landshlutum koma ekki að tómum kofanum hjá Kletti því félagið er í samstarfi við þjónustuaðila víða um land auk þess sem Klettur hefur á að skipa sérútbúna þjónustubíla 10 talsins þar af einn best búna smurþjónustubíl sem völ er á tilbúna að þjónusta viðskiptavini hvar sem er á landinu. Klettur starfar samkvæmt ströngustu kröfum helstu birgja félagsins. Þannig hefur starfsemi Kletts til að mynda hlotið hæstu mögulegu einkunnir hjá Caterpillar fyrir þætti sem snúa að hreinlæti og mengunarvörnum (Contamination Control) auk þess sem hún er með fulla vottun frá Scania sem staðfestir gæði og hátt þjónustustig (Dealer Operating Standard – DOS).
Helstu styrkleikar Kletts liggja í mannauðinum en félagið hefur á að skipa metnaðarfullu og hæfileikaríku starfsfólki sem býr yfir áralangri reynslu og mikilli sérþekkingu sem nýtist á hverjum degi. Hjá Kletti eru ríflega hundrað starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Á fimmta tug bifvéla- og vélvirkja starfa hjá félaginu og tæplega þrjátíu við hjólbarðaþjónustu. Önnur starfsgildi eru sérfræðistörf í tæknimálum og fjöldi starfa á þjónustusviði, við sölu, á lager, á skrifstofu og í yfirstjórn félagsins. Hjá Kletti er mikið lagt upp úr menntun starfsmanna. Til að mynda njóta starfsmenn verkstæðisins símenntunar sem er fólgin í fjölda námskeiða hjá helstu birgjum félagsins.
Skipurit KlettsHefur þú áhuga á að vinna hjá framsæknu sölu- og þjónustufyrirtæki? Við skoðum alla sem falla inn í góða liðsheild. Umsóknir berast þjónustustjóra og verður öllum umsóknum svarað.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi vélvirkja á vélaverkstæði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndar aðstöðu.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi vélvirkja á vélaverkstæði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndar aðstöðu.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi á verkstæði Kletts. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi á verkstæði Kletts. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.