Perkins Vélar og Rafstöðvar

 Perkins Vélar og rafstöðvar

Erum með öfluga viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir Perkins mótora.

Á undanförnum árum hefur þróunin orðið sú að stærri vélaframleiðendur hafa keypt upp minni framleiðendur til þess að breikka framleiðslulínur sínar.

Þannig hefur Caterpillar bæði keypt framleiðendur minni véla sem og stærri. Hér er um að ræða Perkins og MaK. Þá hefur Caterpillar einnig keypt F.G. Wilson, sem er samsetningarverksmiðja rafstöðva. Caterpillar markaðssetur og selur Olympian-línuna frá F.G. Wilson.

Perkins framleiðir vélar í stærðunum frá 5 hö. til 2.600 hö. Caterpillar notar vélar frá Perkins í hluta af sölulínu sinni í rafstöðvum og bátavélum undir heitunum Caterpillar og Olympian.

Hjá okkur eru því allar tækniupplýsingar, varahlutir, þjónusta og þekking undir sama þaki . Hvar færð þú það annarstaðar fyrir þinn Perkins mótor ?

Smellið á myndir hér að ofan  til þess að nálgast almennar tækniupplýsingar á vef Perkins