Um Klett

 

Á síðasta ári var fyrirtækið KLETTUR – Sala og þjónusta stofnað um þau verkefni sem áður tilheyrðu Vélasviði Heklu.

KLETTUR Sala og þjónusta býður viðskiptavinum sínum upp á breiða línu  vinnuvéla, lyftara, aflvéla í skip og rafstöðva,  vöruflutninga- og hópferðabifreiða, hleðslukrana, gámakróka og -lyftur,  palla og malarvagna,  hjólbarða,  gíra og skrúfubúnað, auk annars búnaðar og fylgi- og aukahluta fyrir vinnuvélar, bifreiðar, sjávarútveg og iðnað frá mörgum öðrum framleiðendum.

Flaggskip fyrirtækisins er Caterpillar-merkið og hefur þjónustumiðstöð Kletts fimm stjörnu úttekt frá þeim framleiðanda.

Staðsetning Kletts við Sundahöfnina í Reykjavík hefur mikið hagræði í för með sér hvað varðar þjónustu við skip og báta.   Steinsnar er frá fyrirtækinu fram á bryggju þar sem skipin geta lagst að þegar þau sækja viðhaldsþjónustu Kletts og eftirlit með vélbúnaði um borð.

Klettur hefur aukið umsvif sín jafnt og þétt frá því fyrirtækið hóf starfsemi og hefur einnig verkefni í Noregi, Færeyjum og víðar.

"„Við leggjum mikla áherslu á þjónustuþáttinn og undirstrikum að það er margsannað hversu miklu skiptir að fá þjónustu frá sérhæfðum viðgerðarmönnum í viðkomandi vélbúnað."–KLETTUR Sala og þjónusta

Þennan bakgrunn hafa okkar starfsmenn sem hafa sótt sér sérþekkingu til framleiðenda vélbúnaðarins,”

KLETTUR Sala og Þjónusta er til húsa í Klettagörðum 8-10  í glæsilegri þjónustumiðstöð sem er sérhönnuð með tilliti til starfsemi  okkar, sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar úrvalsþjónustu.

Við byggjum okkar grunn á því að HEKLA var eitt elsta starfandi fyrirtæki landsins í sölu og þjónustu á atvinnutækjum og því byggjum við okkar styrk á ómældri reynslu til að miðla til viðskiptavina okkar.

Góð þjónusta hefur alla tíð verið einkunnarorð KLETTS. Til að efla þjónustu okkar við viðskiptavini á landsbyggðinni hafa verið gerðir samningar við Trukkinn ehf. á Akureyri um þjónustu við viðskiptavini Vélasviðs KLETTS á Norðurlandi.
Rík áhersla er lögð á að gott úrval varahluta sé ætíð fyrir hendi og að þjónustuverkstæði séu mönnuð fólki með reynslu og þekkingu og hafi ætíð til afnota verkfæri og tæki, sem svara til ýtrustu krafna nútímans.

HEKLA var með umboð fyrir CATERPILLAR frá árinu 1947 og hefur allt frá þeim tíma átt stóran þátt í að vélvæða íslenska fiskiskipaflotann. Auk þess hafa Caterpillar vinnuvélar komið við sögu allra stórframkvæmda á sviði jarðvinnu hérlendis, svo sem virkjun fallvatna til raforkuframleiðslu o.s.frv.

Árið 1995 tók HEKLA við umboði fyrir hinu vel þekkta vörumerki SCANIA, sem gerir okkur  kleyft að bjóða ökutæki í öllum stærðarflokkum, allt frá minnstu fólksbílum upp í stærstu vöruflutninga- og hópbifreiðar.

Góð þjónusta hefur alla tíð verið einkunarorð HEKLU og því höldum við áfram hjá KLETTI Sölu og þjónustu.

 

"Í starfsemi eins og við erum í er þjónustuhlutverkinu aldrei lokið. Hver og einn viðskiptavinur er sérstakur og þörfum hans þarf að mæta samkvæmt því. Um slíkt leggjum við okkur fram hjá KLETTI  enda er það ekki síst þjónustan sem fyrirtækið er þekkt fyrir,"–KLETTUR Sala og þjónusta