Verkstæði hraðþjónusta
Sparaðu tíma og forðastu tímapantanir fyrir minniháttar lagfæringar eða viðhald.
Með Hraðþjónustu KLETTS færð þú snarpa þjónustu hjá tæknimönnum okkar á meðan þú bíður, og leitast er við að hafa tækið þitt tilbúið á innan við 1 ½ klukkustund.
Ef forgreining gefur til kynna að þörf á umfangsmeiri og stærri viðgerðum látum við þig vita og leitumst við að gefa þér góð ráð varðandi næstu skref hjá okkur.
Líttu við þegar þér hentar og losnaðu við óþarfa tímapantanir til þess að láta hlúa að tækinu þínu.

