Mælastofa

Mælastofa Vélasviðs – Kvörðun mælitækja & verkfæra

Mælitæki eru ómissandi til að halda vélum og tækjum í topp ástandi.

Það er til dæmis mögulegt, að athuga hvort ástand tækis sé í samræmi við forskriftir framleiðanda með ýtarlegum mælingum og prófunum.

Með gæði að leiðarljósi , er nauðsynlegt að prófa og kvarða þau verkfæri sem notuð eru á verkstæðum okkar reglulega.
Verkfæri eru prófuð með fullkomnum mælitækjum og athugað hvort frávik séu í aflestri miðað við óskað gildi og staðla.
Niðurstöður eru skráðar í miðlæga grunna hjá okkur og fær hvert verkfæri staðfestingar vottorð að lokinni prófun.

Við erum meðvitaðir um gæði og því höfum við okkar eigin kvörðunardeild sem starfrækt er á Gæða og Tæknideild KLETTS

Með því náum við hágæða þjónustu og framúrskarandi gæðum – sem byrjar með kvörðunarþjónustu þar sem þau mælitæki sem notuð eru innan KLETTS  og af umboðsaðilum okkar um allt land eru prófuð.

Öll okkar verkfæri eru skráð í tækjaskrá sem gerir okkur mögulegt að innkalla og yfirfara þau á réttum tíma og þannig tryggja að öll vinna er eins nákvæm og mögulegt er.

Sem dæmi má nefna að herslumælar eru kvarðaðir á 6 mánaða frest hjá okkur og fjölsviðsmælar og þrýstimælar einu sinni á ári.

Flæðimæla og önnur sértæk verkfæri eins og Stoneridge ökurita-forrita sendum við í kvörðun til okkar framleiðenda.

KLETTUR setur mjög háan staðal hvað varðar gæði og það ættir þú líka að gera þegar þú leitar til okkar.