Verkstæði
Á vélaverkstæði KLETTS starfar góður hópur valinkunnra manna hvort heldur sem verkefnin eru til lands eða sjós. Vélasvið KLETTS býr yfir fullkomnu vélaverkstæði ásamt sérbúnum þjónustubifreiðum og vel menntuðu starfsliði.
Hjá okkar færðu alhliða þjónustu- og smur fyrir fólksbíla, vörubíla, rútur, vinnuvélar, krana, bátavélar, gíra, loftpressur, landbúnaðartæki og almenn atvinnutæki.
Afgreiðslutími vélaverkstæðis er: mánudaga – föstudaga kl: 08:00 – 17:00
Beinn sími verkstæðismóttöku er. 590 5200
Þjónustusími utan afgreiðslutíma hjá Scania er 825 5740
Þjónustusími utan afgreiðslutíma hjá CAT er 825 5760
Varahlutir
KLETTUR - kappkostar að veita viðskiptavinum sínum skjóta og góða varahlutaþjónustu. Starfsmenn okkar búa yfir áralangri reynslu og mikilli sérþekkingu sem er lykillinn að góðri og öruggri þjónustu.
Afgreiðslutími varahlutaverslunar er: mánudaga – föstudaga kl: 08:00 – 17:00
Beinn sími varahlutasölu er. 590 5220
Þjónustusími varahluta utan afgreiðslutima er 825 5750
Hjólbarðar
Hjólbarðasvið KLETTS býður upp á óendanlega möguleika þegar hjólbarðar eru annars vegar, hvort sem um er að ræða fólksbíla, lyftara, vörubifreiðar eða stærstu gerðir vinnuvéla
Afgreiðslutími hjólbarðaverkstæðis er: mánudaga – föstudaga kl: 08:00 – 17:00
Beinn sími hjólabarðaverkstæðis er: 590 5280
Þjónustusími hjólbarða utan afgreiðslutíma er 825 5795
Þjónustuaðilar
KLETTUR leggur áherslu á að veita viðskiptavinum úti á landi góða þjónustu. Þjónustuverkstæði Vélasviðs er:
Trukkurinn ehf. á Akureyri
Þessi aðili býr yfir sérþekkingu á þjónustu fyrir vörumerki KLETTS.
Þjónustusamningar
Stöðugt færist í vöxt að viðskiptavinir okkar óska eftir að gera fasta þjónustusamninga. Í þjónustusamningi felst að tækið er þjónustað reglulega af sérmenntuðum starfsmönnum okkar og viðskiptavinurinn greiðir fasta mánaðarlega upphæð. Rekstraröryggi eykst og minni hætta verður á ótímabæru vinnutapi.
Kynntu þér þjónustusamninga KLETTS.
