
Scania hefur afhjúpað 440- og 480 hestafla 13 lítra vélar sem uppfylla Euro 6 staðal sem tekur gildi 2014. Þessar vélar eru aðalegar ætlaðar í vörubíla til að byrja með, en henta samt einnig ágætlega í önnur tæki eða vinnuvélar.
Vélarnar frá Scania nýta samsetningu af tæknilausnum sem þeir hafa hannað til að ná Euro 6 kröfunum sem taka gildi 1 janúar 2014. En til þess að ná Euro 6 þarf meðal annars að minnka NOx um 80% og sótagnir um 66% miðað við Euro 5, ásamt töluverðri lækkun á HC og CO.
Það sem vekur einnig mikla athygli er að þrátt fyrir að uppfylla Euro 6, þá eykst eldsneytiseyðsla ekki miðað við Euro 5 vélar.
Með því að setja þessar vélar strax á markað, þá opnar það glugga fyrir fyrirtæki að fjárfesta í nýjustu mengunartækni strax. Með því geta fyrirtækin lækkað töluvert skatta og álögur sem til eru komnir vegna útblásturs og kallast yfirleitt “Grænir Skattar”
Eftir miklu er að slægjast þar sem nokkur skattþrep eru yfirleitt á bíla og tæki í löndum og borgum Evrópu miðað við CO2 g/kw í útblæstri.
“Þeir borga sem menga ” – Því er mikið um að í löndum Evrópu sé hvati að því að uppfæra vélar til þess að þær mengi minna.
Til dæmis er það þannig í Dannmörku að hluti af “Grænum skatt” er nýttur til þess að styrkja þá sem uppfæra vélar með sótagnasíu (DPF) um allt að 30% eða 2.013 evrur af ísetningarkostnað búnaðar, auk þess er síðan 134 evru lækkun á sköttum á ári. Sjá nánar bls 25 í úttekt á Sadler Consultants varðandi Low Emission Zones in Europe
Í tilskipun 715/2007 má síða sjá áætlaðar breytingar fyrir euro 5 og 6. Og á bls. 12 eru góðar töflur fyrir euro 5 og á bls. 13 fyrir euro 6.





